Verðskrárbylting, iCell – eMax/Loftlínan

Einstaklingar, Internetþjónusta (Home Package)

Heiti pakka Niðurhal innifalið í pakka Mán.gjald
Einstaklingar 1 1 GB 1.990
Einstaklingar 2 Ótakmarkað 9.990

*umframniðurhal kr/GB = 500 kr. (ATH bæði innlend og erlend umferð er mæld)

Sumarhúsapakkar, Internetþjónusta (Summerhouse Package)

Heiti pakka Niðurhal innifalið í pakka Mán.gjald
Sumarhús- allt árið 1 GB 1.990

*umframniðurhal kr/GB = 500 kr. (ATH bæði innlend og erlend umferð er mæld)

Fyrirtækjapakkar, Internetþjónusta (Company Package)

Heiti pakka Niðurhal innifalið í pakka Mán.gjald
Fyrirtæki 1 50 GB 10.000
Fyrirtæki 2 Ótakmarkað
20.000

*umframniðurhal kr/GB = 500 kr. (ATH bæði innlend og erlend umferð er mæld)

Til viðskiptmanna iCell / eMax / Loftlínunnar

Frá og með 1.maí 2012 munu verð og ákriftapakkar fyrir þjónustu eMax-Loftlínunnar breytast verulega. Einnig verða gerðar breytingar á verðum á ADSL samböndum og ljósleiðarasamböndum (Hvað varðar ljósleiðarasambönd þá bætist við gagnaflutningsgjald/heimtaugar frá eiganda ljósleiðarakerfanna á hverjum stað fyrir sig). Verð frá 1.maí eru þá eftirfarandi.

Þjónustframboð hefur verið aukið til muna og bjóðum við nú ADSL tenginar á öllu landinu, fyrirtækjatengingar og Sjónvarp (IPTV) yfir ADSL/VDSL og ljósleiðaratengingar. Einnig sinnum við nú þéttbýlisstöðum.

Fyrst um sinn verða allir viðskiptavinir okkar sem flokkast undir einstaklinga skilgr. í pakkann einstaklingar 2 (niðurhal ótakmarkað/ómælt) og geta þeir sem hafa hug á að kaupa ódýrari pakka óskað eftir því að vera fluttir á milil pakka með því að hringja í okkur í þjónustuverið í síma 544-4454 eða senda okkur tölvubréf á emax@emax.is.

Sjá nánar eMax.is undir flipanum; Verðskrá

Verðskrá, einstaklingar sjá á  vefslóðinni : http://www.emax.is/?page_id=82

Verðskrá, fyrirtæki sjá á vefslóðinni : http://www.emax.is/?page_id=79

Ástæða þess er að þetta er mögulegt nú er að iCell ehf hefur náð hagkvæmum samningum við aðila sem selur okkur gáttun út á Internetið sem leiðir til þess að mögulegt er að veita mun hagstæðari pakka er varðar niðurhal  en hingað til.

Breytingar á vef- og lénahýsingum

Frá og með næstu mánaðarmótum mun Opex ehf taka yfir hýsingu á heimasíðusvæðum hjá viðskiptamönnum sem áður voru hjá iCell-eMax.

Opex hefur séð um hýsingar fyrir eMax (þ.e. félögin Material ehf og frá því í október 2011, Icell ehf) í um fjögur ár og mun þessi breyting ekki hafa nein áhrif á þjónustuna.

Verðið mun hinsvegar lækka úr 2.429 í 1.490 kr á mánuði og reikningurinn mun koma frá Opex í stað iCell ehf (rekstraraðila eMax).

Framvegis skal hafa samband við Opex varðandi þjónustu við þitt heimasíðusvæði (ath hafa samband við eMax varðandi internetþjónustu).

Ef þú ert einnig með Internetþjónustu frá iCell ehf (rekstraraðila eMax), þá mun það ekki breytast neitt og mun eMax-iCell ehf halda áfram að þjónustu þig með það.

 

Með kveðju,

 

f.h. iCell ehf

Njörður Tómasson, framkv.stj.

 

f.h. Opex ehf

Bergur Haukdal

Opnunartími yfir Páskana

Opnunartími þjónustuvers okkar verður yfir Páskana sem hér segir :

Miðvikudagur, virkur dagur 4.apríl, kl 9.00 – 21.00
Fimmtudagur, Skírdagur, 5.apríl, kl 12.00 – 15.00
Föstudagurinn langi, 6.apríl, Lokað
Laugardagurinn, 7.apríl, kl 12.00 – 15.00
Sunnudagur, Páskadagur, 8.apríl, Lokað
Mánudagur, Annar í Páskum, 9.apríl, kl 12.00 – 15.00

Við óskum viðskiptavinum okkar til sjávar og sveita gleðilegra Páska

Breytingar á eignarhaldi á eMax

Þann 1.október síðastliðinn var kaupsamningur undirritaður á milli Material ehf (sem hingað til hefur rekið eMax) og iCell ehf um kaup hins síðarnefnda á fjarskiptakerfi, vörumerki, viðskiptasamningum og lausamunum Material ehf. Samhliða þessum kaupum var hið nýja rekstrarfélag fjármagnað sem gerir það mun betur í stakk búið til þess að takast á við þau verkefni sem nauðsynleg eru til þess að viðhalda kerfinu og veita nauðsynlega þjónustu fyrir viðskiptavini eMax.

Það er hér með tilkynnt að frá og með 1.október tók iCell yfir öll kerfi og viðskiptasamninga Material ehf. Þjónustan verður eftir sem áður rekin undir merkjum eMax.

Samhliða þessum breytingum munu reikningar, greiðsluseðlar og kreditkortafærslur berast ykkur í nafni iCell ehf hér eftir, en ekki Material ehf eins og hingað til. Hvað varðar kreditkortafærslur þá munu þær ekki birtast inn á kreditkortayfirlitum viðskiptamanna f. tímabilið september-október 2011 og munu því bæði færslur vegna notkunar september og október 2011 færast á október-nóvember tímabilið. Beðist er afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Fyrstu verkefni nýs félags er að meta ástand núverandi sendastaða og gera í kjölfarið endurbótaáætlun. Verkefnið gengur fyrst og fremst út á að forgangsraða með þeim hætti að þeir sendastaðir sem veikastir eru verða endurbættir fyrst og svo koll af kolli. Ljóst er að hluti fjarskiptakerfisins er orðinn úr sér genginn og er því nauðsynlegt að hefja endurbætur á því sem allra fyrst. Það skal þó tekið fram að þessar umbætur eru tímafrekar þar sem sendastaðir félagsins eru mjög margir og víða á fjallstoppum og verður þetta verkefni því tímafrekt.

Nú þegar hefur verið ráðist í að panta notendabúnað og sendabúnað sem nýttur verður til þess að endurbæta núverandi uppsetningar og bæta við nýjum viðskiptavinum. Samhliða þessu er ætlunin að skoða aðrar flutningsleiðir varðandi högun fjarskiptanetsins, svo sem með því að nýta svokallaða ADSL tækni eða sambærilega og þá ljósleiðara þar sem það er hægkvæmt.

Framundan er mikil vinna við endurbætur og er það ósk nýrra rekstraraðila að viðskiptavinir eMax sýni okkur þolinmæði á meðan á þessum endurbótum stendur.

Icell hefur ráðið til starfa Njörð Tómasson, en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri Fjarska ehf, dótturfélags Landsvirkjunar og þekkir því vel að veita fjarskiptaþjónustu í dreifbýli. Þá er ætlunin að auka upplýsingagjöf til viðskiptavina frá því sem verið hefur og halda ykkur upplýstum um fyrirbyggjandi viðhald og breytingar sem fyrirhugað er að gera á þeim svæðum sem þið búið á. Þá stendur til að halda upplýsinga og kynningarfundi sem auglýstir verða síðar.

Það er einlæg von okkar að þessar breytingar leiði til þess að viðskiptavinir eMax fái góða þjónustu.

f.h. iCell ehf

Njörður Tómasson
framkvæmdastjóri

iCell kaupir Loftlínukerfi Vodafone

Þann 1.október var undirritaður kaupsamningur þar sem iCell ehf kaupir og Vodafone selur sendakerfi sem hingað til hefur veitt hinu svokölluðu Loftlínuþjónustu Vodafone. Til upplýsinga þá hefur iCell ehf einnig keypt öll kerfi sem rekin hafa verið undir vörumerkinu eMax og mun því hér eftir vera leiðandi í þjónustu á þráðlausum Internettengingum í hinum dreifðari byggðum landsins.

Icell mun því yfirtaka skuldbindingar Vodafone gagnvart viðskiptavinum Loftlínuþjónustunnar og veita áfram þá þjónustu sem að Vodafone hefur veitt hingað til.

Þessi félög munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja rekstrarsamfellu við þessar breytingar og er það von okkar að þær valdi ekki truflunum á Internettengingu yðar um Loftlínuna.

Samhliða þessum breytingum munu reikningar, greiðsluseðlar og kreditkortafærslur berast ykkur í nafni iCell ehf hér eftir, en ekki Vodafone (Fjarskipta ehf) eins og hingað til. Hvað varðar kreditkortafærslur þá munu þjónustufulltrúar eMax-iCell ehf hringja í þá viðskiptavini sem valið hafa að greiða með kreditkorti og nálgast upplýsingar um kreditkortanúmer hjá ykkur.

Skilin varðandi reikningagerð verða með eftirfarandi hætti. Viðskiptamenn munu fá reikninga frá Vodafone fyrir notkun vegna september nú í október þar sem reikningar eru sendir út eftirá, en munu fá reikninga frá Icell ehf í nóvember vegna notkunar í október.

Ef eitthvað er óljóst þá er þér óhætt að senda tölvupóst á emax@emax.is og þjónustufulltrúi eMax-iCell mun hafa samband við þig í framhaldi. Þú getur einnig hringt beint í þjónustuverið okkar í síma 5444454.